Fara í efni
← Til baka í fræðslu

Discord-aðgangurinn minn var tekinn yfir — hvað geri ég?

Það sem þú ættir að gera fyrst ef þú heldur að einhver annar hafi komist inn á reikninginn þinn.

Ekki bíða og „sjá hvort þetta lagist“. Ef þú sérð skilaboð sem þú sendir ekki, vini sem þú bættir ekki við eða stillingar sem þú breyttir ekki — farðu beint í að ná aðganginum til baka.

Byrjaðu hér, ef þú kemst inn

  • Breyttu lykilorðinu strax.
  • Kveiktu á 2FA ef hún er ekki þegar á.
  • Farðu í Authorized Apps og fjarlægðu allt sem þú þekkir ekki.
  • Skráðu aðrar lotur út, svo sá sem komst inn sé ekki enn inni.
  • Láttu stjórnendur vita ef þú varst með háar réttindi á server.

Ef þú kemst ekki inn

Notaðu endurheimtun hjá Discord. Ef svikamenn breyttu netfanginu þínu, fylgdu leiðbeiningum Discord um account recovery. Þetta getur tekið smá tíma — en það er rétti staðurinn til að byrja.

Eftir á

Segðu vinum að hunsa undarleg skilaboð frá þér, sérstaklega Nitro-hlekkir eða beiðnir um peninga. Ef eitthvað var keypt án þín, hafðu samband við Discord Support. Ef peningar fóru af korti eða í banka, byrjaðu þar líka.

Viltu aðeins meiri hjálp við að passa upp á serverinn?

Verndarinn er íslenskur Discord-bot fyrir íslensk samfélög. Hann hjálpar stjórnendum að fylgjast með því sem gerist á servernum og bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Allt sem þú þarft til að byrja er kostnaðarlaust.