Ef stjórnandi missir aðganginn getur sá sem kemst inn breytt stillingum, hent fólki út, bætt við bottum eða eyðilagt serverinn. Lykilorð eitt og sér er oft ekki nóg.
2FA þýðir að einhver þarf meira en lykilorðið þitt. Það stoppar ekki allt — en það stoppar mjög mikið af því sem gerist þegar aðgangur lekur.
Kveiktu á þessu á servernum líka
Discord leyfir þér að krefjast 2FA fyrir moderation. Þá geta stjórnendur ekki varað, mute-að, kick-að eða bannað nema 2FA sé á reikningnum. Þetta er eitt af því fyrsta sem er þess virði að kveikja á.
Góð venja
- Kveiktu á 2FA á eigin reikningi fyrst.
- Krefjist 2FA fyrir stjórnendur á servernum.
- Notaðu authenticator-app, ekki bara SMS, ef þú getur.
- Geymdu öryggiskóðana á öruggum stað — ekki í opnum notes á skjáborðinu.